Er allt komið í hund og kött?

Er allt komið í hund og kött

 

Hið svokallaða gæludýrafrumvarp hefur verið afgreitt úr nefnd og er reiðubúið til annarrar umræðu í þinginu. Þingmaður Framsóknar segir frumvarpið fela í sér réttindaskerðingu fólks sem af heilsufarslegum eða félagslegum ástæðum getur ekki búið nærri gæludýrum. 

Ég er með ofnæmi fyrir köttum og hundum. Sérstaklega köttum (eins og flestir) vegna þess að kettir eru miklu meiri ofnæmiskveikjur heldur en hundar. 

Ég bjó mörg ár í Noregi þar sem það er litið á það sem mannréttindi að eiga hund, en þú þarft samþykki nárganna í blokkinni ef þú vilt eiga kött, vegna þess að þeir eru mun meiri ofnæmisvaldar en hundar. 

Þrátt fyrir mitt ofnæmi fyrir hundum og köttum hef ég ekki verið í vandræðum með að lifa venjulegu lífi þar sem hundar eru í nágenni við mig. 

Ég tek mínar ofnæmistöflur og er í fínu jafnvægi. 

En, þegar um ketti er að ræða, þá duga ofnæmistöflurnar ekki. Ég fæ ofnæmiskast þrátt fyrir ofnæmistöflur. 

Í Noregi hafa menn viðurkennt þessa staðreynd og hundahald er álitið mannréttindi en kattahald er ennþá háð samþykki nágranna.

Af hverju er Ísland svona langt á eftir. Hundahald hefur aldrei verið vandamál fyrir ofnæmissjúklinga en kattahald er talsvert mikið verra fyrir ofnæmissjúklinga. 

Reynum nú að nálgast allar aðrar norðurlandaþjóir og leyfa hundahald í öllun búsetuúrræðum. Allir eiga að hafa rétt á því að eiga hund. 

 

 

 

 


« Síðasta færsla

Bæta við athugasemd

Hver er summan af fimm og tíu?
Nota HTML-ham

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband